
Leikmannaráð
m.fl. Hugins
|
Reglur og viðurlög fyrir leikmenn og
þjálfara Hugins:
|
250 króna
sektir eru gefnar fyrir eftirfarandi brot á reglum:
• Mæta ekki á
tilsettum tíma á æfingar, leiki, fjáraflanir
o.þ.h.
• Við hvert gult spjald í leik.
• Fyrir of lélegt fagn við markaskorun
(sá sem skorar markið)
• Ef síminn hringir á fundum o.þ.h.
|
| 500
króna sektir eru gefnar fyrir eftirfarandi brot á
reglum:
• Fyrir rautt spjald í
leik
• Fyrir hvert leikbann
• Fyrir að mæta ekki á æfingu
án þess að hafa gilda afsökun, forföll
þarf að tilkynna til þjálfara eða
fyrirliða minnst þrem tímum fyrir æfingu
eða fyrir sólarupprás.
|
| 1000
króna sektir eru gefnar fyrir eftirfarandi brot á
reglum:
• Fyrir að mæta ekki í
fjáraflanir á vegum liðsins án
þess að hafa gilda afsökun, sem samþykkt
er af leikmannaráði fyrir fram.
• Fyrir að mæta undir áhrifum áfengis
(eða vímuefna) á æfingar eða
leiki.
|
| Annað:
• Eftir fyrsta leik fyrir mfl.Hugins þarf leikmaður
að taka á móti bylmings höggi frá
fyrirliða liðsins, á beran afturendann.
• Tveir yngstu leikmenn á æfingu eða
leik þurfa að hugsa um bolta, vesti, keilur og
vatn.
• Peningar frá sektum þessum
renna óskipt til stjórnenda leikmannaráðs
sem stefna á utanlandsferð eftir sumarið
og kunnum við þeim bestu þakkir fyrir sem
leggja pening til styrktar með brotum sínum.
|
Þessi
viðurlög eru gildandi frá og með 24.maí
2006.
Með fyrirvara um breytingar.
|