www.huginn.org

 
 
 

"Litli klúbburinn með stóra hjartað"

 

 

 

 

 

 

 

 

02.08.2010 - Gu?mundur J?nsson
Jafntefli í síðasta heimaleiknum.

Síðastliðinn Þriðjudag fékk Huginn Einherja í heimsókn. Þetta var síðasti heimaleikur Hugins í riðlakeppninni en liðið á tvo útileiki eftir.

Liðið: Siggi; Hjörtur-Egill-Richard-Tom; Stefán-Gunnar-Jack-Binni-Baldur; Tómas.
Á bekk voru: Raggi, Gauti, Gummi, Jói og Atli.

Huginn hóf leikinn af krafti og voru sterkari aðilinn heilt yfir. Það tók hálftíma að brjóta ísinn. Tómas fékk þá stungusendingu inn fyrir vörnina, plataði markvörðinn og lagði boltann í opið markið.
Staðan var 1-0 í hálfleik.
Síðari hálfleikur var ekki gamall þegar Einherji hafði jafnað. Miðjumaður þeirra átti þá skot sem fór í leikmann Hugins og yfir Sigga í fjærhornið. á 56.mínútu kom Raggi inná fyrir Stefán, sem hafði meiðst skömmu áður. Þegar korter var eftir fékk sóknarmaður Einherja sitt annað gula spjald og þar með rautt. Skömmu síðar kom Gauti inná fyrir Binna, við það færðist Tom á vinstri kantinn og Baldur fór enn framar.
Huginn sótti af nokkrum krafti það sem eftir lifði leiks en sigurmarkið kom ekki, og því lauk leiknum með 1-1 jafntefli.

Næsti leikur er gegn Draupni í Boganum á Akureyri þann 14.ágúst og lokaleikur liðsins í riðlinum er svo gegn Magna á Grenivík viku síðar.


27.07.2010 - Gu?mundur J?nsson
Tap á Fáskrúðsfirði

Huginn tapaði gegn Leikni F. á fimmtudagskvöldið síðastliðið. Þetta var annar tapleikurinn gegn Fáskrúðsfjarðarliðinu í sumar.

Byrjunarliðið: Bjössi; Hjörtur-Egill-Richard-Tom; Jack-Tómas-Kristján-Rúnar-Baldur; Biggi.
Bekkur: Binni (inn fyrir Baldur á 58), Stefán, Gunnar, Gauti, Benni.

Leiknismenn hófu leikinn af krafti og skoruðu á 4.mínútu. Þá komst leikmaður þeirra inn í teiginn, datt ekki einu sinni heldur tvisvar en stóð upp og hélt áfram og á endanum kom annar leikmaður þeirra boltanum yfir Bjössa og í netið. Á 16.mínútu jafnaði Huginn metin. Jack átti þá rispu á hægri kantinum, hljóp að teignum og setti boltann laglega með vinstri fæti í fjærhornið. Strax 4 mínútum síðar komust Leiknir yfir aftur. Aukaspyrna frá miðju rataði á hávaxinn leikmann Leiknis sem skallaði boltann yfir Bjössa. Á 31.mínútu komst Leiknir í 3-1. Leikmaður þeirra lék svipaðan leik og Jack hafði gert, kom inn á völlinn af hægri kanti og setti boltann í slánna og inn.
Staðan var 3-1 í hálfleik og Leiknismenn kraftmiklir.
Eftir 11 mínútna leik minnkaði Huginn muninn. Leiknismenn voru ósáttir við hornspyrnu sem Huginn fékk en Jack var fljótur að taka spyrnuna og Tómas skoraði í opið markið á meðan Leiknismenn rifust við dómarann. Það rifrildi jókst auðvitað við að Huginn skoraði og ótrúlegt að enginn heimamaður hafi uppskorið gult spjald fyrir mótmæli, enda ekkert sem bannaði Huginsmönnum að taka hornspyrnuna þó Leiknir væru uppteknir við að röfla í dómaranum.
Heimamenn fengu þó vítaspyrnu strax eftir þetta þegar Kristján tæklaði leikmann þeirra sem var við það að skjóta á markið. Kristján fékk þar sitt annað gula spjald og þar með rautt. Leiknir nýttu vítið og staðan orðin 4-2 og erfið fyrir Huginsmenn.
Huginn reyndu að laga stöðuna en það tókst ekki og endaði leikurinn 4-2, og ljóst að þó tölfræðilega sé enn möguleiki að komast í úrslitakeppnina er það orðið afar erfitt. En við höldum áfram!


26.07.2010 - Brynjar Skúlason
Huginn - Einherji

Einherja menn mæta í heimsókn þriðjudaginn 27 júlí kl: 20:00. Verður þetta síðasti heimaleikur Hugins í sumar og því fer hver að verða síðastur til að kíkja á strákana.


21.07.2010 - Brynjar Skúlason
Leiknir - Huginn

Huginn mun fara í heimsókn til Fáskrúðsfjarðar á morgun fimmtudag og spila við Leiknismenn. Huginn tapaði fyrri leik liðanna í sumar og á því harma að hefna. Seyðfirðingar verða að sjálfsögðu að mæta og styðja strákana.

ATH. LEIKURINN MUN HEFJAST KL 20:30


17.07.2010 - Gu?mundur J?nsson
Sigur á toppliði Dalvíkur/Reynis

Það var svakaleg stemning á Seyðisfjarðarvelli þegar Dalvík/Reynir heimsótti fjörðinn fagra. Vegna lokasýningar LungA var reynt að færa leikinn til kl.16 en norðanmenn vildu það ekki svo leikurinn hófst á upphaflegum tíma, kl.14.00.

Nokkrar breytingar voru á liði heimamanna sem leit annars svona út:
Bjössi - Kristján, Egill, Richard, Tom - Friðjón, Rúnar, Nik, Tómas, Jack - Biggi.
Bekkur: Baldur Smári (inn fyrir Tómas), Ívar Hafliða (inn fyrir Bigga), Gauti, Gunnar Már og Benni.

Völlurinn var votur eftir nóttina en áhorfendur sluppu við rigningu, til að byrja með. Nokkuð fjölmenni var á leiknum þrátt fyrir að lokasýning LungA rækist á leikinn, og mikið fór fyrir kröftugum stuðningshópi gestanna, sem hélt stuðningsmönnum Hugins við efnið allan leikinn.
Huginsmenn byrjuðu af krafti og uppskáru mark eftir því. Jack skoraði þá eftir að markmaðurinn hreinsaði boltann í Tómas Arnar og eftirleikurinn auðveldur fyrir Jack.
Kraftur Huginsmanna minnkaði þegar Dalvíkingar jöfnuðu metin. Sóknarmaður þeirra fékk þá full mikinn tíma á boltanum og lagði hann í fjærhornið niðri. Við þetta efldust gestirnir og þeir komust yfir skömmu síðar. Rangstöðutaktíkin klikkaði og sóknarmaður þeirra kom boltanum framhjá Bjössa. Huginsmenn voru þó ekki á því að hætta og Jack skoraði öðru sinni. Hann setti pressu á varnarmann andstæðinganna og vann af honum boltann, fór framhjá markverðinum og lagði boltann í markið.
Staðan var 2-2 í hálfleik.
Seinni hálfleikur byrjaði illa þegar Kristján varð fyrir því óláni að skora stórglæsilegt sjálfsmark, og stuðningsmenn Dalvíkur ærðust af fögnuði.
Huginn jafnaði metin þegar hornspyrna Friðjóns rataði á hausin á Agli sem skallaði boltann niður og á milli lappa markvarðarins. 3-3 og þvílíkur leikur!
Krafturinn var aftur kominn í lið Hugins og þeir ætluðu sko ekki að fara með tap á bakinu inn í kvöldið. Skyndisókn skilaði fjórða markinu þegar Biggi skoraði af öryggi, setti boltann í fjærhornið niðri. Dalvík jafnaði þó enn og í þetta skipti kom markið úr aukaspyrnu. Aukaspyrnan var góð og fór boltinn í slá og inn, rosalegt mark.
Um það bil korteri fyrir leikslok kom svo níunda mark leiksins. Friðjón komst inn fyrir vörnina og lagði boltann í fjærhornið, stöngina og inn. Virkilega vel slúttað hjá Friðjóni.

Leiknum lauk með 5-4 sigri sem hefði getað boðið upp á enn fleiri mörk. Marktækifærin voru þó nokkuð vel nýtt þennan daginn en auk þess áttu gestirnir skot í stöng ásamt því sem Bjössi varði boltann í slánna, fékk hann í sig og hann fór yfir.
Í leikslok var heimamönnum virkilega vel fagnað enda góður sigur á sterku liði Dalvíkur. Þetta var raunar fyrsta tap Dalvíkur í riðlinum og það var ljóst að það þyrfti karakter, baráttu og svo miklu miklu meira til að sigra þá.
Stuðningsmenn beggja liða öttu kappi allan leikinn og var almennt góð stemning milli þeirra. Þetta er leikur sem gleymist seint og var hreint út sagt ævintýralegur.


15.07.2010 - Gu?mundur J?nsson
Huginn 2-3 Magni

Huginsmenn fengu Magna í heimsókn á blautann og lausann Seyðisfjarðarvöll síðastliðinn Sunnudag.

Byrjunarlið Hugins: Bjössi - Tom, Richard, Kristján, Hjörtur - Baldur, Nik, Friðjón, Rúnar, Jack - Birgir.

Varamenn: Tómas Arnar (inn fyrir Baldur á 53.mín), Ívar Hafliða (inn fyrir Hjört á 74.mín), Gauti, Stefán, Gunnar Már.

Fyrri hálfleikurinn var nokkuð jafn, þrátt fyrir að Huginn hafi byrjað af krafti fyrstu mínúturnar datt leikur þeirra nokkuð niður eftir það.
Magni komst yfir eftir 24 mínútur þegar kantmaður þeirra komst upp kantinn, reyndi fyrirgjöf sem fór af varnarmanni og í nærhornið yfir Bjössa. Mikil óheppni.
Forysta Magna jókst þegar þeir fengu vítaspyrnu á 36.mínútu og skoruðu úr henni.
Staðan var 0-2 í hálfleik.
Fljótlega í síðari hálfleik kom Tómas inná fyrir Baldur og Huginn minnkaði muninn strax í kjölfarið. Þar var á ferðinni Friðjón.
Gestirnir juku forskot sitt á ný þegar kantmaður þeirra komst full langt með boltann og lagði hann fyrir þar sem miðjumaður þeirra lagði boltann í markhornið. Staðan orðin 1-3. Þegar u.þ.b. korter var eftir skipti Binni sóknarmanni inná fyrir bakvörð. Ívar Hafliða kom inná fyrir Hjört Gunnlaugs. Leikmaður Magna fékk sitt annað gula spjald á nokkrum mínútum og þar með rautt og skömmu síðar minnkaði Ívar muninn í 2-3 og allt mögulegt. Huginn sótti stíft síðustu mínúturnar og í einni sókninni taldi undirritaður einhver 3 færi sem fóru forgörðum á nokkrum sekúndum.

Leiknum lauk með virkilega svekkjandi 2-3 tapi. Leikurinn var í sjálfu sér nákvæmlega jafn vel spilaður og ásigkomulag vallarins gaf til kynna að hann yrði. Huginsmenn fengu nokkuð mörg tækifæri til að skora í leiknum en þegar Birgir skallaði boltann í jörðina og slánna í fyrri hálfleik óttuðust margir að þetta yrði "einn af þessum dögum".

En það þýðir ekki að svekkja sig á þessum leik, framundan eru tveir virkilega mikilvægir leikir. Fyrri leikurinn er gegn Dalvík/Reyni á Seyðisfjarðarvelli næsta laugardag kl.14.00 og svo er komið að útileik gegn Leikni F á fimmtudaginn.
Allir á völlinn!


11.07.2010 - Gu?mundur J?nsson
Samherjar 2 - 4 Huginn

Síðastliðið föstudagskvöld mætti Huginn Samherjum í Boganum á Akureyri.

Byrjunarlið Hugins: Bjössi - Hjörtur, Kristján, Richard, Tom. Jack, Nik, Rúnar, Friðjón, Baldur - Biggi.

Bekkurinn: Tómas, Gauti, Gunnar Már, Stefán, Gummi.

Fyrstu 30. mínúturnar voru tíðindalitlar en um það leyti kom Tómas Arnar inná fyrir Tom vegna nárameiðsla. Við þetta færðist Kristján í vinstri bakvörðinn og Tómas tók stöðu miðvarðar með Rich. Fljótlega eftir skiptinguna fékk Friðjón vítaspyrnu sem hann skoraði sjálfur úr. Áður en fyrri hálfleik lauk var staðan orðin 0-2. Huginn fékk aukaspyrnu rétt utan teigs, Friðjón vippaði boltanum inn fyrir vörnina og Jack sparkaði boltanum viðstöðulaust í átt að fjærstönginni þar sem Kristján kom á ferðinni og skallaði boltann í netið. Í hálfleik var staðan 0-2 fyrir Huginn.

Í síðari hálfleik slökuðum við aðeins á og urðum kærulausir. Samherjar minnkuðu muninn með skoti sem breytti um stefnu af varnarmanni sem gerði Bjössa erfitt fyrir. Eftir þetta tókum við aftur við okkur og náðum aftur tveggja marka forystu þegar Biggi skoraði. Aftur hleyptum við spennu í leikinn þegar heimamenn skoruðu á 75.mínútu, og aftur var það einbeitingarleysi sem hafði sitt að segja. Seint í síðari hálfleik fékk leikmaður Samherja svo sitt annað gula spjald og þar með rautt og því voru þeir einum færri það sem eftir lifði leiks. Það var svo kærkomið lokamark leiksins sem Biggi skoraði eftir að Huginsmenn höfðu spilað sig í gegn um vörn heimamanna. Lokatölur 2-4.


10.07.2010 - Brynjar Skúlason
Samherji 2 - Huginn 4

Huginn vann samherja í gær 4-2. Biggi 2, Kristján og Friddi (víti). Gummi hendir vonandi betri pistli inn á næstunni.

Annars er hörku leikur við Magna á morgun kl 13:00 og vonandi verður margt um manninn á vellinum.


07.07.2010 - Brynjar Skúlason
Samherji - Huginn

Þessi leikur hefur verið færður til föstudags 9 júlí kl 19:00


05.07.2010 - Brynjar Skúlason
Næstu leikir

Þá er það komið í ljós að við munum spila næst við Samherja á útivelli fimmtudaginn 8 júlí kl 19:00. Svo sunnudaginn 11 júlí munu Magnamenn koma aftur í heimsókn og spila leikinn sem var flautaður af í síðustu viku. Sá leikur mun hefjast kl 13:00.


02.07.2010 - Brynjar Skúlason
Huginn - Magni

Lítið um þennan leik að segja nema að hann fór framm í ausandi rigningu og var að lokum flautaður eftir 45 mín. Þá var staðan 1-1 og skoraði Nik og kom okkur í 1-0. Þessi leikur (hálfleikur) mun þó væntanlega verða lengi í minnum allra þeirra sem tóku þátt og horfðu og var hin ágætasta skemmtun. Þegar þetta er ritað er ekki vitað hvenær við munum mæta Magna aftur en það mun koma í ljós von bráðar. En reglur kveða á um að leikur skuli endurtekinn ef hann er flautaður af fyrir 70 mín.

http://www.fotbolti.net/getImg.php?id=62914&table=newspictures&w=500


29.06.2010 - Brynjar Skúlason
Huginn - Magni

Á fimmtudaginn 1. júlí munu Magna menn koma í heimsókn í fjörðinn. Leikurinn mun hefjast kl 20:00 og eru allir hvattir til að mæta á völlinn.


28.06.2010 - Gu?mundur J?nsson
Huginn 4-0 Draupnir

Á laugardaginn síðastliðinn tóku Huginsmenn á móti Draupni frá Akureyri. Fyrir leikinn voru Draupnismenn með 4 stig en Huginn 3. Í lið Hugins komu nýir leikmenn. Tom Gaunt, Richard Brough og Jack Hands spiluðu allir sína fyrstu leiki auk þess sem Benni Jóns kom inná. Lið Hugins leit svona út: Bjössi var í markinu. Í vörn voru (frá vinstri) Kristján, Richard, Egill, Hjörtur. Á miðju voru Tom, Rúnar, Friðjón, Nik og Jack og fremstur var Binni. Á bekk sátu Baldur, Gunnar, Stefán, Benni og Gummi.
Fyrri hálfleikurinn var fínn að mörgu leyti hjá heimamönnum en mörkin létu á sér standa. Binni fékk 2 dauðafæri og Tom fékk fínt færi, svo eitthvað sé nefnt. En ákveðinn vendipunktur var þegar Draupnismaður fékk rautt spjald fyrir tæklingu á Rúnari. Þótti þetta vafasamt, enda hefði gult spjald líklega verið næg refsing, en dómarinn veifaði því rauða. Eftir þetta var eins og Huginsmenn minnkuðu kraftinn og var staðan markalaus í hálfleik.

Binni skipti sjálfum sér útaf í hálfleik og kom Baldur Smári inná í hans stað. Baldur var ekki búinn að vera lengi inná vellinum þegar hann fékk góða sendingu inn fyrir vörnina, renndi honum á Friðjón sem var einn og óvaldaður og setti boltann í markið, 1-0. 5 mínútum síðar fengu Huginsmenn vítaspyrnu. Friðjón var þá sloppinn einn í gegn og markvörður Draupnis felldi hann og fékk gult spjald. Friðjón tók spyrnuna sjálfur og skoraði örugglega. Gunnar Már kom inn á eftir 59.mínútur fyrir Nik sem spilaði ekki heill og á 78.mínútu kom Stefán inná fyrir Friðjón. Í seinni hálfleiknum voru Huginsmenn töluvert meira með boltann og það var því furðulegt að staðan var 2-0 í 20 mínútur eða þar til á 78.mínútu þegar Jack Hands skoraði sitt fyrsta mark fyrir Huginn. Benni kom svo inná á þegar 5 mínútur voru eftir fyrir Rúnar Frey. Jack átti einnig skot sem hafnaði í slánni og skoppaði inn fyrir línuna og út aftur, og hefði því átt að fá sitt annað mark þar. En hann bætti því þó við á 90.mínútu og hefði því átt að næla í þrennu. Öruggur og góður 4-0 sigur, sem hefði þó mátt vera enn stærri ef tekið er mið af marktækifærum og fleiru.
Allir leikmenn stóðu sig vel og spiluðu af skynsemi og ákveðni. Aðeins vantaði upp á spilið og að boltinn gengi hraðar manna á milli, og gæti það verið orsök þess að sigurinn var ekki enn stærri.
Næsti leikur er strax á fimmtudagskvöldið gegn Magna hér á Seyðisfirði en þeir eru einu stigi á undan Huginn með 7 stig.
Allir á völlinn!


22.06.2010 - Brynjar Skúlason
Huginn - Draupnir

Laugardaginn 26 júní koma Draupnismenn í heimsókn. Leikurinn byrjar kl 16:00. Huginn hefur unnið 1 leik af 4 og er með 3 stig en Draupnir hefur unnið 1 og gert 1 jafntefli og er með 4 stig. Það er því von á hörku leik.


09.06.2010 - Brynjar Skúlason
Einherji - Huginn

Fimmtudagur 10 júní kl 20:00 á Vopnafirði


31.05.2010 - Brynjar Skúlason
Huginn - Leiknir F

Næskomandi föstudag, 4 jún, mætast Huginn og Leiknir á Garðarsvelli. Leikurinn mun hefjast stundvíslega kl 20:00. Bæði lið hafa leikið 2 leiki og eru Huginn með 3 stig og Leiknir 1.


29.05.2010 - Gu?mundur J?nsson
Dalvík/Reynir 3 - 1 Huginn

Í dag spiluðu Huginsmenn við Dalvík/Reyni á Árskógsströnd. Smá breytingar voru á hópnum og byrjunarliðinu frá síðasta leik, en það leit svona út í dag: Björn var í marki. Hjörtur, Kristján, Egill og Ljuba voru í vörninni. Á miðjunni voru Rúnar, Friðjón, Nik og Binni. Frammi voru Birgir og Ívar. Á bekk voru Gunnar Már, Baldur, Gauti, Stefán og Gummi.
Huginsmenn hófu leikinn ágætlega og virtist dómarinn hafa dæmt vítaspyrnu, þegar hann tók eftir því að aðstoðardómarinn hafði flaggað rangstöðu. Þetta vakti heimamenn og þeir tóku leikinn í sínar hendur. Huginsmenn náðu ekki upp jafn góðu spili og í síðasta leik og Dalvíkur menn ógnuðu reglulega, en tókst á einhvern hátt að misnota nokkur mjög góð tækifæri til að komast yfir. Þeir komust að lokum yfir verðskuldað eftir fyrirgjöf þar sem miðjumaður þeirra skoraði. Stuttu síðar fékk Egill högg á ökklann og gat ekki haldið áfram. Gunnar Már kom inná fyrir hann og við það var Ívar færður í miðvarðarstöðuna og Gunnar Már fór í stöðu framliggjandi miðjumanns. Áður en fyrri hálfleikurinn var úti lentu tveir leikmenn heimamanna saman með þeim afleiðingum að annar þeirra var tekinn útaf alblóðugur.
Í hálfleik var staðan 1-0 og var það vel verðskuldað.
Í síðari hálfleik var sagan nokkuð svipuð, spil gestanna gekk ekki nógu vel og heimamenn voru líklegri til að bæta við mörkum. Það gerðu þeir, raunar tvisvar, og komust í 3-0. Bæði mörkin úr föstum leikatriðum. Baldur Smári kom inn á fyrir Friðjón og strax eftir það sótti Birgir víti sem hann skoraði sjálfur úr. Undir lokin var Baldur nálægt því að sleppa í gegn en hann náði ekki að taka háan bolta alveg nógu vel niður.
Úrslitin voru sanngjörn og satt best að segja hefði tapið getað orðið stærra.


26.05.2010 - Brynjar Skúlason
Höttur/Einherji - Fjarðabyggð/Leiknir/Huginn

Höttur/Einherji og Fjarðabyggð/Leiknir/Huginn mættust á Fellavelli í kvöld í 2. flokki karla. Okkar menn byrjuðu vel og komust í 0-3 en Höttur/Einherji náði að jafna leikinn í 3-3 áður en okkar menn tryggðu sér sigurinn með fjórða markinu og lokatölur 3-4. Daniel Sakaluk skoraði þrennu og Hilmar Freyr Bjartþórsson eitt. Liðið hefur því unnið fyrstu þrjá leiki sína og er eitt á toppnum með 9 stig og markatöluna 15-8. Huginn átti 3 stráka í hóp að þessu sinni og tóku þeir allir þátt. Kristján spilaði allan leikinn, Rúnar fyrstu 60 mín og Gauti síðustu 30 mín.


25.05.2010 - Brynjar Skúlason
D/R - Huginn

Næsti leikur Hugins er á útivelli gegn D/R. Leikurinn verður næstkomandi laugardag, 29 maí, kl 14:00. Þegar þetta er ritað er allt útlit fyrir að leikurinn verði spilaður á Árskógsvelli. Liði D/R var spáð yfirburðum í riðlinum okkar og verður þetta því verðugt verkefni fyrir okkur.


24.05.2010 - Brynjar Skúlason
2. flokkur Fjarðabyggð/Leiknir/Huginn - Breiðablik 2

2. flokkur vann í gær Breiðablik 2 með fimm mörkum gegn einu. Staðan í hálfleik var 1-1. Mörk okkar manna skoruðu Hilmar Freyr Bjartþórsson, Daniel Sakaluk, Hákon Þór Sófusson, Björgvin Stefán Pétursson og Pétur Aron Atlason. Fullt hús úr tveim fyrstu leikjunum og efsta sæti riðilsins með 11 mörk skoruð og fimm fengin á okkur. Kristján og Rúnar léku allan leikinn og Gauti og Stefán komu inná í lokin. Atli var meiddur. Flott byrjun hjá strákunum og næsti leikur á útivelli gegn Hetti/Einherja næsta miðvikudag kl. 20.


22.05.2010 - Brynjar Skúlason
Huginn 4-0 Samherjar

Í dag tók Huginn á móti Samherjum á Garðarsvelli í fyrsta leik sínum í riðlakeppnninni. Í byrjunarliðinu voru 2 nýir leikmenn, þeir Nik Chamberlain og Ívar K. Hafliðason. Ívar er framherji og Nik miðjumaður.

Byrjunarliðið var á þessa leið:
Björn Halldórs var markvörður. Bakverðir voru Hjörtur (hægri) og Gauti (vinstri). Miðverðir voru fyrirliðinn Kristján Smári og Egill.
Á miðjunni voru Rúnar, Ljubisa, Nik og Gunnar Már og frammi voru Birgir Hákon og Ívar Karl.
Á bekknum voru Baldur, Stefán, Jói og Gummi.
Liðinu stjórnaði Vilhelm Adolfsson í fjarveru Brynjars, sem var í leikbanni eftir furðulegan misskilning í bikarleiknum gegn Sindra.

Fyrri hálfleikurinn byrjaði vel fyrir heimamenn, sem voru miklu meira með boltann og réðu gangi leiksins, en voru í smá erfiðleikum með að skapa sér afgerandi marktækifæri. Birgir Hákon var líflegur fram á við og átti hann margar rispur í gegnum vörn gestanna og var óheppinn að skora ekki í leiknum. Ívar var einnig ógnandi fram á við þrátt fyrir að vera í smá tíma að koma sér í takt við liðið. Varnarleikur Hugins var traustvekjandi allan tímann þar sem Egill og Kristján stjórnuðu gangi mála.
Miðjan hjá Huginn var traust með Nik í aðalhlutverki. Það var einmitt hann sem skoraði fyrsta mark leiksins, þegar hann skallaði aukaspyrnu utan af kanti án þess að markverði Samherja tækist að verja. Gestirnir komust næst því að skora í leiknum þegar miðjumaður þeirra skaut af löngu færi en Björn var vel á verði og sló boltann í slánna.
Í síðari hálfleik héldu heimamenn áfram að vera meira með boltann, en meiri ró einkenndi leik liðsins heldur en í fyrri hálfleik. Vörn gestanna var í vandræðum með sóknarleik Hugins, en mörg marktækifæri litu dagsins ljós. Annað markið skoraði Nik með skalla eftir hornspyrnu Gunnars Más og útlitið bjart fyrir heimamenn.
Ívar Karl fékk ágætis tækifæri til að skora í sínum fyrsta leik en hann setti boltann framhjá fjærstönginni. Hann þurfti ekki að bíða mjög lengi eftir öðru tækifæri en Nik sendi boltann inn fyrir og Ívar skoraði örugglega framhjá markverði Samherja. Nik innsiglaði svo þrennu sína þegar hann setti boltann í markið af stuttu færi eftir fyrirsendingu frá Birgi.
Allir varamennirnir fengu að spreyta sig í leiknum, Baldur kom inná fyrir Gunnar Má, Stefán fyrir Ívar og Jói og Gummi skiptu við Ljuba og Nik.

Leiknum lauk því með 4-0 sigri Hugins og þrjú verðskulduð stig komin í sarpinn.

-Guðmundur Jónsson


21.05.2010 - Brynjar Skúlason
Huginn - Samherjar

Á morgun 22 maí mun Huginn leika sinn fyrsta leik í 3. deild á þessu ári. Leikurinn mun fara fram á Garðarsvelli og hefst kl 14:00 stundvíslega. Allir Seyðfirðingar nær sem fjær hvattir til að mæta og styðja við bakið á okkar mönnum.


21.05.2010 - Brynjar Skúlason
Huginn spáð 3-4 sæti í D riðli.

Samkvæmt spá þjálfara og fyrirliða í riðlinum okkar er Huginn spáð 3-4 sæti ásamt Einherja.

http://www.fotbolti.net/fullStory.php?action=viewStory&id=91508


16.05.2010 - Brynjar Skúlason
2. fl F/L/H - Afturelding

Í dag spilaði 2 fl. Fjarðabyggð/Leiknir/Huginn (hér eftir nefnt F/L/H) gegn Aftureldingu í fjarðarbyggðarhöllinni og fóru leikar 6-4 fyrir F/L/H. Leikurinn var bráðfjörugur og bauð upp á allt það helsta sem góður knattspyrnuleikur hefur uppá að bjóða. Huginn átti 4 leikmenn í byrjunarliðinu og voru það Atli Gunnar sem var markmaður, Gauti sem var vinstri bakvörður, Kristján Smári sem var hafsent og Rúnar sem spilaði á miðjunni. Stefán kom inná í lokin og spilaði framalega á miðjunni. Allri strákarnir spiluðu glimrandi vel og voru F/H/L með mikla yfirburði í þessum leik að mínu mati þrátt fyrir að fá á sig 4 mörk. Markaskorar voru Haraldur Bergvinsson fernu, Daniel Sakaluk og Hilmar Freyr Bjartþórsson eitt mark hvor.


16.05.2010 - Brynjar Skúlason
Fleiri leikmenn

Huginn hefur fengið 2 leikmenn frá Spyrni. Þeir heita Ívar Hafliðason og Benedikt Jónsson. Báðir apiluðu þeir með Huginn/Spyrni í deildarbikarnum og stóðu sig vel. Ívar getur leist margar stöður á vellinum en hann hefur spilað 87 leiki fyrir Hött, Vask og Spyrni og skorað í þeim 8 mörk. Benedikt hefur spila 4 leiki með Spyrni og hefur ekki enn skorað mark.


15.05.2010 - Brynjar Skúlason
Nýr leikmaður

Jack Hands er fjölhæfur leikmaður sem getur spilað allar stöður á miðjunni. Hann kemur hingað í gegnum Trav. Jack spilaði í vetur með háskólaliði í Sheffield en hefur m.a. spilað með Wolves sem gutti.


15.05.2010 - Brynjar Skúlason
Nýr leikmaður

Huginn hefur fengið leikheimild fyrir Nik Chamberline. Nik er duglegur miðjumaður sem kemur hingað fyrir góð orð fyrrverandi þjálfara Hugins Binna Gests. Nik hefur spilað með liði í bandaríska háskólaboltanum í vetur. Nik er mikill dansari eins og sjá má á myndini og á eflaust eftir að heilla stúlkurnar jafn mikið á dansgólfinu og á knattspyrnuvellinum.


11.05.2010 - Brynjar Skúlason
Nýr leikmaður

Í kvöld fékk Huginn leikheimild fyrir Richard Brough. Richard, sem er enskur, er hávaxinn hafsent sem kemur hingað fyrir tilstilli Travis. Rich eins og hann er kallaður hefur í vetur leikið með háskólaliði í Sheffield en hefur einnig leikið fyrir stórlið eins og Hucknall Town.


16.04.2010 - Brynjar Skúlason
Sumarið 2010

Þá fer að styttast í að tímabilið hefjist hjá okkur. Fyrsti leikur sumarsins verður 9 maí gegn Sindra í bikarnum, sem er óvenju snemmt en bara gaman. Stjórn og þjálfari hafa verið að reyna að koma upp einhverjum hóp fyrir sumarið og verður að viðurkennast að menn voru orðnir frekar svartsýnir á tímabili um að okkur myndi takast að manna lið fyrir sumarið. Það má eflaust búast við einhverjum breytingum á liðinu okkar fyrir þetta sumar en vonandi náum við að stilla upp sterku liði sem mun verða okkur til sóma í deildinni í sumar.
Við höfum fengið vilyrði frá einum ungum leikmanni frá bretlandi um að koma hingað að spila í sumar. Heitir hann Tom Gaunt og er vinstri bakvörður eða kanntmaður. Hann er félagi Travis (T-Bone) sem var hér síðasta sumar og kemur hingað í gegnum Travis. Hann mun koma til okkar þegar skólinn er búinn hjá honum og mun því væntanlega missa af fyrstu leikjum liðsins. Hér er mynd af drengnum fyrir stelpurnar :)


13.01.2010 - Brynjar Skúlason
Fyrstu leikir Hugins 2010

Nú um helgina mun hefjast æfingamót sem dómarar á austurlandi standa fyrir og er ætlað liðum hér fyrir austan. Huginn mun að sjálfsögðu taka þátt. Leikir Hugins í þessu móti verða eftirfarandi:

Föstudagurinn 15 Janúar
20:00 Fjarðabyggð vs Huginn. Völlur: Fjarðabyggðarhöll

Laugardaginn 16 Janúar
11:00 Huginn vs Sindri Völlur: Fjarðabyggðarhöll

Laugardagurinn 30 janúar
14:00 Höttur vs Huginn Völlur: Fellavöllur

Laugardagurinn 6 Febrúar
14:00 Leiknir F vs Huginn Völlur: Fjarðabyggðarhöll